Velkomin!
Kisuminning
06.10.2008 16:35:15 / ragga

Nú er allt í skít

Jæja krakkar mínir, nú er allt í skít hér á fróni. Mín fór í sakleysi sínu inn á kaupthing.is til að skoða gengið og ég fékk næstum hjartaáfall. Í gær þegar ég skoðaði þetta síðast var dollarinn í 114 og pundið í rétt um 200.. en núna er dollarinn 128 og pundið 223!!!! Evran er svo komin í 172!!!! Hvað er eiginlega málið?? Ég pantaði mér af ebay fyrir um 2-3 vikum, þá var pundið 171 og mér fannst það mikið *hristi hausinn*. Ég man þá daga þegar ég byrjaði að panta af ebay fyrir 6 árum, þá var dollarinn 75 krónur og mér fannst það alveg nóg.. svo var hann búinn að vera í 65 og u.þ.b. heillengi. Þvílíkt ástand hér á landi.. maður fer bara að grafa holu og geyma sig þar.. Maður getur ekki einu sinni ebay-ast!

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 19:59:01 / ragga

Orlando Bloom

Ég hef nú aldrei verið Orlando Bloom aðdáandi eins og þið vitið, og hér er sönnun á því að hann er ekki kroppur ;) Hann er nú bara 31 árs en er ekki í neinu sérstöku formi ;) Sjáið bara sjálf ;)
http://visir.is/apps/pbcs.dll/gallery?Site=XZ&Date=20080625&Category=LIFID01&ArtNo=593461895&Ref=PH&Params=Itemnr=3&NoBorder=1&PictureCount=

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 00:07:31 / ragga

Viggo Mortensen er óendanlega hot!!

Jeminn eini, haldið þið ekki að ég hafi séð Viggo Mortensen.. Aragorn, THE KING!! Og ekki varð ég fyrir vonbrigðum, það get ég sagt ykkur. Mér er sama þó maðurinn sé að verða fimmtugur, hann er ótrúlega heillandi manneskja! Og lítur sko ekki út fyrir að vera fimmtugur, mesta lagi fertugur að mínu mati ;) Fékk eiginhandaráritun (3, reyndar hehehe) svo nú getið þið öfundað mig! Múhahahaha.. :D:D  Vildi að ég gæti gifst þessum manni!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 16:31:12 / ragga

Hahahahaha!!

Hversu heimskur heldur maðurinn eiginlega að við almenningurinn séum?? Þetta hérna er linkur á útskýringu Gumma "IronMaster" á myndbandinu fræga og trúið mér, þvílík og önnur eins vitleysa hefur sjaldan verið skráð á blað ;) http://visir.is/article/20080509/FRETTIR01/612171324 Hvet alla til að lesa þetta! Gellan í þessu myndbandi er einmitt sú sem kærði hann fyrst.. ég hélt að hún hefði búið á Byrginu en ekki í sinni eigin íbúð eins og hann talar um ;) Smjörsýran og raddupptakan er toppurinn á þessarri frétt.. ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 11:34:02 / ragga

Sumarið kemur bráðum :D:D

Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.. það er kominn 19. apríl! Mér finnst svo stutt síðan ég byrjaði á Litlu Kaffistofunni en það var 22. JANÚAR!! Bráðum verður komið sumar.. :D Get ekki beðið eftir því að fá sumarið. Verst að maður þarf að vinna eitthvað. Ég ætla samt að reyna að fá frí í júlí, jafnvel hætta og fara í skóla í haust. Maður verður að klára þetta ;) Annars er lítið að frétta af mér, það er bara vinna alla virka daga. Við mamma keyptum reyndar nýja tölvu í gær, búnar að bíða alla vikuna eftir að hún komi. Átti fyrst að koma á miðvikudag, svo fimmtudag og loks kom hún á föstudag. En haldiði þá ekki að það hafi vantað eitthvað millitengi til að tengja skjáinn við skjákortið???? Ég var brjáluð! Mamma er sem betur fer að fara að ná í tengið núna svo ég fæ loksins nýju tölvuna mína á eftir :D:D Er sko farin að sakna gagnanna minna sem voru í hinni, öll tónlistin og það :D En það er víst ekki mikið meira sem ég hef að segja, ætlaði bara rétt að láta vita að ég væri ekki dauð ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 13:22:37 / ragga

Viðvörun: Þunglyndislegur pistill ;)

Undanfarin 3 og hálft ár hef ég sóað tilfinningum mínum í mann sem endurgeldur þær ekki. Það hafa komið tímar þar sem ég hélt að ég væri loksins búin að sigrast á þessum tilfinningum en alltaf hafa þær komið til baka. Ég er orðin langþreytt á þessu öllu saman, því hver vill eyða hjarta sínu á mann sem líður ekki eins gagnvart manni? Ég veit að þessum aðila þykir mjög vænt um mig, eða það segir hann allavega. Í rauninni finnst mér það bara enn verra, vita að hann hefur tilfinningar til mín en ekki bara þær réttu. Ég hef alltaf vitað að ég yrði að komast yfir hann en það getur verið svo erfitt að segja hjartanu að gera eitthvað sem það engan veginn vill. Ef hjartað fengi að ráða þá yrði hann minn að eilífu... Ég veit að margir ef ekki flestir hafa lent í þessu líka, bara misjafnlega lengi sem tilfinningarnar vara.. Mínar hafa varað alltof lengi.... Ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa þennan pistil var einfaldlega sú að ég vona að með því að tala um þetta þá kannski komist ég yfir hann fyrr.. Borin von en það má alltaf reyna, ekki satt?

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 18:03:55 / ragga

Reykjavíkurferð

Ég skellti mér suður um helgina, aðallega til að fara á sýningu Kynjakatta. Þar var margt um köttinn og ég var alveg að missa mig yfir sumum eins og við var að búast. Kattholt var með 5 kisur þarna og mig langaði svo að taka 2 með mér heim hehehe. Reyndar hefði ég svo sem alveg viljað taka þá alla! Voru svo miklar dúllur. Ég skoðaði maine coon kettina sérstaklega vel enda með mikinn áhuga á þeirri tegund. Spjallaði við eigendur og ræktendur um þá og svona. Þeir eru algjört æði. Svo miklir bangsar! Aratan sem er aðalsmerki Fornahvamms ræktunarinnar vegur ein 10 kíló! Takk fyrir og góðan daginn. Svo segir fólk að Valdi minn sé stór? ;) Hann er nú bara tæplega 7 kíló ;) Ég tók helling af myndum á sýningunni og það gæti vel verið að ég myndi skella þeim á netið til að sýna ykkur.
Annars gerði ég nú ekki mikið í Reykjavík nema þetta vanalega, versla og það. Verslaði samt ekki mikið í rauninni. Allavega ekki af fötum, bara 3 brækur og eina peysu, sem telst nú slappur árangur hjá mér ;) Skemmti mér samt mjög vel í borginni og hefði viljað vera lengur þar en það var víst ekki hægt.
Af mér er annars lítið að frétta, það er bara vinna og allt það sem því fylgir að vera lifandi ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 16:50:53 / ragga

Illa þefjandi?

Ég rakst á þessa snilldar"frétt" á mbl.is og grenjaði næstum því úr hlátri. Ákvað því að deila þessu með ykkur
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/02/29/bloom_illa_lyktandi/

Ef þetta er ekki einhver mesta snilld sem ég hef séð lengi þá veit ég ekki hvað!! :lol::lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 23:22:30 / ragga

Only the good die young!

Jæja, eins og allir vita þá er hann Heath Ledger dáinn, einungis 28 ára gamall. Auðvitað þurfti það að vera einhver ungur, fallegur og góður leikari en ekki eitthvað gerpi eins og Woody Allen! Heath Ledger var náttúrulega bara æðislegur. Hvaða stelpu slefaði ekki yfir 10 things I hate about you í gamla daga? Eða þá A Knight's Tale? Ég held að þær hafi verið ófáar ;) En svona til að minnast kappans ætla ég að setja inn nokkrar myndir af honum, hann var nú einu sinni svo sætur! ;)

 

Svo er hérna á linkur á paparazzi ljósmyndir sem náðust við tökur á Brokeback Mountain.. já stelpur, hann er nakinn!

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 17:18:25 / ragga

Lag

Þetta lag segir allt sem segja þarf...

 

Welcome to the party
Come on in and disappear
You're feeling like a stranger
But all your friends are here
Little lines and cracks
Around your eyes and mouth
Something's trying to get in
Something's trying to get out

It's ok, to be a little broken
Everybody's broken, in this life
It's ok, to feel a little broken
Everybody's broken, your alright
It's just life

Step into the deep end
Make yourself at home
When you wonder why your breathing
Know your not alone
It's so hard to believe
It's easier to doubt
You're trying to hold in
But your dying to scream out

It's ok to be a little broken
Everybody's broken

In this life
It's ok to feel a little broken
Everybody's broken, your alright
It's alright, it's just life

[Solo]

Take a look around
Tell me what you see
Is who you think you are
Who you want to be

It's ok, to be a little broken
Everybody's broken, in this life
It's ok, to feel a little broken
Everybody's broken, your alright
Just keep on going
Eyes wide open
Everybody's broken
Everybody's broken
Everybody's broken
Everybody's broken
Everybody's broken
Everybody's broken
Yeah

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 17:11:35 / ragga

...... (Hata fyrirsagnir, veit aldrei hvað ég á að skrifa)

Jæja, í dag er víst 20. janúar, sem þýðir að bráðum er janúar búinn!! :D Kannski ekki alveg, en bara 11 dagar eftir :D Ég er víst komin með vinnu og það á Litlu Kaffistofunni.. ég sem ætlaði aldrei aftur í sjoppu! hehe. Held samt að það sé aðeins öðruvísi en Leirunesti. T.d. er ég á föstum vöktum, 9 - 16, sem er góður tími. Einnig held ég að lúgan sé ekkert mikið notuð þarna, fólk kemur aðallega inn. Ég get svo sem ekki sagt að mig langi eitthvað gífurlega mikið að vinna þarna, en þetta er skárra en Rúmfó! Maður er líka alltaf búin um 4 sem þýðir að dagurinn er ekki alveg búinn ;) Eina sem ég hef áhyggjur af er að vakna! hehehe. Ég vona að þetta verði ekkert svo hræðileg vinna. Við sjáum til hvað setur.

Utan við þessa frétt er lítið að frétta af mér, lífið gengur bara sinn vanagang. Kambur minn er ekki kominn heim og ekkert hefur frést af elskunni minni :cry: Æi, það er svo sárt að vita ekkert um hann...

En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra, það er að byrja leikur, Ísland - Frakkland á EM í handbolta! ÁFRAM ÍSLAND!!!!!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 14:26:24 / ragga

Gleðilegt árið (betra seint en aldrei)

Nú er víst ein vika búin af þessu nýja ári og jólahátíðin því offically búin. Get ekki sagt að það sé neitt skemmtilegt.. langar ekkert að taka niður allt jólaskrautið mitt. Fyllist alltaf hálfgerðu þunglyndi þegar öll ljósin fara niður og allt verður dimmt og drungalegt. Janúar og febrúar eru þeir mánuðir sem ég þoli ekki, ekkert að gerast, allir hálfdauðir eftir jólaösina og ofátið sem átti sér stað í desember. Verslanir hálfdauðar og lífið einhvern veginn bara silast áfram. En sem betur fer verður farið að vora áður en við vitum af :D:D

Af mér er lítið að frétta, hef verið að sækja um vinnur undanfarið þar sem mig vantar 100% vinnu. Einnig býst ég við að verða í fjarnámi þessa önnina, sórri um 9 einingar, held það sé nóg til að vera í fjarnámi. Ef að ekkert fæst hérna á Akureyri af vinnu gæti farið svo að maður endaði fyrir sunnan. Langar það samt eiginlega ekki, en er ekki gott að breyta til? Maður sér til hvað setur..

Kambur minn er ekki enn kominn heim og er ég farin að verða vonlítil um að sjá elskuna mína á lífi framar... Guð hvað ég sakna hans.. Þrátt fyrir að eiga svona marga ketti þá finnst mér allt svo tómlegt án hans.. Ég vona bara að honum líði vel hvar sem hann... vonandi kemur hann heim að lokum..

Læt þetta duga í bili, það er ekkert gaman að lesa vælið í mér ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 15:07:32 / ragga

Gleðileg jól!

Ég er stödd í vinnunni núna og ákvað að nota tækifærið og blogga smá. Á morgun er víst aðfangadagur jóla, finnst það ótrúlegt.. tíminn hefur liðið svo ótrúlega hratt!! Var ekki sumar í fyrradag? :lol: En allavega ætlaði bara að segja eitt í þessu bloggi..

Gleðileg jól og farsælt komandi ár, elskurnar mínar!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 13:16:25 / ragga

Jóla hvað? :P

Nú eru bara 6 dagar til jóla! Vá hvað tíminn hefur liðið hratt! Ég á enn eftir að setja upp stytturnar og loftskraut í tveim herbergjum, geri það á eftir, þegar ég kem heim úr kláminu ;) Sem ætti að vera milli 2 og 3 ;) Á fimmtudaginn er svo útskriftarveisla hjá Björgu, já haldið þið ekki að hún sé að útskrifast úr VMA! Allir annað hvort búnir eða hættir, svo að þegar ég drattast aftur verður enginn þarna! ;) Jæja, ég get sjálfri mér um kennt hehe.

Af Kambi mínum hefur ekkert frést, sakna hans svo rosalega.. Hann var/er litla barnið mitt og hann var minn, elskaði mig meira en alla aðra.. Það er svo tómlegt án hans.. Hræðilegt að vita ekkert hvar hann er niðurkominn..

 En jæja, af mér er ekki mikið að frétta í rauninni, ég hef nú lítið gert undanfarið nema undirbúa jólin ;) Ætla að halda áfram að gera eitthvað í kláminu, styttist í að Súla komi aftur :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 10:35:21 / ragga

Elsku Kamburinn minn...

Elsku strákurinn minn er týndur og hefur verið það síðan 10. nóvember. Ekki sést tangur né tetur af honum og ekkert heyrst heldur. Löggan hefur ekki fenið tilkynningu um að einhver hafi keyrt á hann.. Annað hvort er hann á vappi einhvers staðar eða þá að hann varð fyrir bíl og dó ekki strax og náði að hlaupa eitthvað.. kisur gera það þegar þær eru hræddar.. Kannski liggur elsku strákurinn minn einhvers staðar og ég get ekki fundið hann því ég veit ekkert hvar ég á að leita... Ég sakna hans svo mikið, hann var svo æðislegur.. Gerði svo fallegt hljóð.. gúrrr.. þegar maður kallaði á hann eða klóraði mallanum hans. Ég sakna hans svo sofandi á tölvutöskunni minni sem hann hertók og ég gaf eftir.. Elsku Kambur minn, hvar ertu litla skinnið mitt?

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Leitarbox

Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1552 dögum
Kambur týndist